Aðalvalmynd

Ulti Clocks content
Franskir Dagar Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Á Fáskrúðsfirði hafa Franskir dagar verið haldnir árlega síðan 1996 og eru þeir iðulega haldnir síðustu helgi júlímánaðar. Þessa helgi er haldið á lofti minningunni um veru Frakka á Fáskrúðsfirði og tengsl þeirra við staðinn, auk þess sem heimamenn ásamt gestum gera sér glaðan dag.

 


 
Franskir dagar hafa þannig unnið sér sess sem árleg bæjarhátíð Fáskrúðsfjarðar, burtfluttir koma í heimsókn, fermingarbarnamót eru haldin og árgangar mæla sér mót. Fulltrúar frá vinabænum Gravelines hafa oft komið og tekið þátt í Frönskum dögum.

 

Bæjarhátíðin Franskir dagar hefur mælst vel fyrir og verið vel sótt enda vel tekist til. Er þar ekki síst að þakka því ágæta fólki sem lagt hefur á sig mikla vinnu við að gera þessa daga að raunveruleika og bera að þakka því fyrir fórnfúst starf.
 

Fréttir af MBL